VERÐMAT
Consensa fasteignasala sérhæfir sig í verðmati fasteigna, óháð tegund þeirra og staðsetningu.
Hjá okkur geta viðskiptavinir fengið frítt söluverðmat áður en eignin er sett á söluskrá eða skriflegt verðmat sem er greitt fyrir samkvæmt verðskrá. Flestar lánastofnanir gera kröfu um skriflegt verðmat fasteignasala vegna lánafyrirgreiðslu.
Við verðmat fasteigna eru einkum notaðar þrjár mismunandi aðferðir: Markaðsaðferð, Tekjuaðferð og kostnaðaraðferð.
Óháð matsaðferð þá leggjum við mikinn metnað í það að rökstyðja ávallt niðurstöðu matsins.